Kynningartilboð á IPL
IPL háreyðingarmeðferðin er frábær til þess að losna við bæði andlits- og líkamshár en tækið fjarlægir hárin til frambúðar! Meðferðin virkar á bæði ljós og dökk hár. Meðferðirnar eru mislangar eftir einstaklingum en oftast duga fjögur skipti til að fjarlægja hár undir höndum til frambúðar.
Þú mætir á fjögurra til sex vikna fresti þangað til svæðið er orðið hárlaust.
Til 15. október verðum við með kynningartilboð á háreyðingu undir höndum.
20% afsláttur er veittur af fjórum skiptum sem nægir oftast til að gera handakrika hárlausa til frambúðar.
Hvert skipti er á 13.900 kr. x 4 skipti = 55.600 kr.
Kynningarverð: 44.480 kr.
Háreyðing
Strax eftir fyrsta skiptið sérðu mikinn mun á hárvexti, en tækið fjarlægir hárin til frambúðar. Meðferðirnar eru mislangar en það fer eftir hárvexti hvers og eins. Meðferðir taka 6-10 skipti til að ná fram hárlausu svæði.
IPL háreyðingarmeðferð er aðferð til að eyða varanlega óæskilegum hárum. IPL byggir á sterkum ljósgeisla með ákveðinni bylgjulend sem varir í brot úr sekúndu. Ljósstyrkurinn er er sjálfvirkt aðlagaður að sverleika hársins. Litarefnið í hárinu tekur upp orkuna úr ljósinu, hitnar og flytur varmann til rótarinnar sem brennir hana. Meðferðin virkar á bæði ljós og dökk hár en þó er árangurinn meiri ef um dökk hár ræðir. Við ákveðið hitastig lokast hársekkurinn og getur ekki myndað nýtt hár. Handfang tækisins er stöugt kælt með vatni þannig að meðferðin er bæði sársaukalaus og myndar ekki bruna á húðinni.
Fjöldi meðferða er 6 – 10 skipti, eftir hárvexti. 4-6 vikur líða á milli meðferða.
Háræðaslit og Rósroði
IPL ljóstæknimeðferð vinnur á háræðasliti og rósroða. Strax eftir fyrsta tímann sérðu mun á húð.
Fjöldi meðferða við háræðasliti er 4-6 skipti, eftir húðgerð.3-4 vikur líða á milli meðferða.
Fjöldi meðferða við rósroða er 8-10 skipti, eftir húðgerð.3-4 vikur líða á milli meðferða.
Endurnýjandi meðferð fyrir andlit og háls
IPL ljóstæknimeðferð vinnur á slappri húð og hrukkum í andliti og á hálsi. Meðferðin örvar kollagen framleiðslu húðar og gefur unglegt og frísklegt
útlit. Strax eftir fyrsta tímann sérðu mun á húð.
Fjöldi meðferða er 4-8 skipti, eftir húðgerð, vikulega.
Litabreytingar í húð
IPL ljóstæknimeðferðin vinnur á öldrunarblettum, brúnum blettum og sólaskmmdum í húð. Meðferðin er fyrir andlit, bringu og handabök. Strax eftir fyrsta tímann sérðu mun á húð.Fjöldi meðferða er 2-4 skipti, eftir húðgerð. 3-4 vikur líða á milli meðferða.
Almennar upplýsingar um IPL ljóstæknimeðferð
IPL ljóstæknimeðferð (e. Intense Pulse Light) er ný og endurbætt ljóstækni-meðferð frá BENTLON í Hollandi.
IPL-ljóstæknimeðferð býður upp á margs konar meðferðarúrræði sem gætu verið góð lausn fyrir þig.
IPL-meðferðirnar eru sársaukalausar, henta fyrir stærri svæði líkamans svo sem bak, bringu, fótleggi og handleggi en einnig minni svæði,t.d. andlit, háls o.fl.
Meðferðartíminn er mislangur eftir vali á meðferð en allar meðferðirnar taka að jafnaði nokkra heimsóknartíma.
Meðferðin hefst á viðtalstíma þar sem vandamál hvers og eins eru greind,möguleikar á úrlausn metnir og framkvæmd prófun á húð.